Um verkefnið
Verkefnið er unnið af Unu Helgu Jónsdóttur og er lokaverkefni í meistaranámi við fornleifafræðideild Háskóla Íslands. Leiðbeinandi er Gavin Lucas, prófessor í fornleifafræði við HÍ. Una Helga starfar nú sem framkvæmdastjóri hjá menningaferðaskrifstofunni Mundo. Una hefur því ekki bakgrunn í tölvugeiranum en hefur mikinn áhuga á framsetningu fræðiefnis og því að almenningur, leikmenn og börn hafi greiðan aðgang að upplýsingum og fræðsluefni sem snertir alla þjóðina. Tæknilegar hliðar verkefnisins, uppsetning vefsíðu o.fl. voru unnar í sameiningu við eiginmann Unu Helgu, Agnar Darra Lárusson, og kann hún honum innilegar hjartans þakkir fyrir allt.
Viljir þú lesa nánar um verkefnið, aðferðafræðina, takmarkanir, fyrri rannsóknir o.fl. getur þú nálgast greinargerð höfundar sem fylgir verkefninu.
Ný útgáfa
Í þessari nýju útgáfu bætast við gögn frá Minjastofnun Íslands um skráðar minjar, gjóskulög og nýjar rannsóknir, og loftmyndir frá 1945–46 frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Sögur Unu standa óbreyttar. Gamla útgáfan frá 2020 er áfram aðgengileg: skoða hana.
Hafa samband: unahelga(hjá)gmail.com
