Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Katanes í Hvalfjarðarsveit

Borgarfjarðarsýsla

Katanes í Hvalfjarðarsveit

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2014
Uppgraftaraðilar
Hildur Gestsdóttir
Tilgangur
Rannsókn vegna framkvæmda
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar
Staðsetning
Áætluð

Rannsóknarleyfi Minjastofnunar

Tengd sjálfkrafa eftir staðsetningu; Una á eftir að staðfesta.

Sagan

Framkvæmdarannsókn á mannvistarleifum undir handleiðslu Hildar Gestsdóttur hjá Fornleifastofnun Íslands fór fram árið 2014. Um sumarið höfðu verið teknir prufuskurðir á svæðinu sem gáfu til kynna að frekari rannsókn væri þörf. Tvö svæði voru grafin upp á staðnum um haustið. Á öðru svæðinu voru tvö mannvirki grafin upp, það eldra var líklega útihús og ekki hægt að aldursgreina það, hið yngra var mögulega reykhús (þar sem það var niðurgrafið) sem hefur verið í notkun fram á f. hl. 20. aldar skv. gripum sem fundust þar. Eftir að hætt var að nota húsið var það nýtt sem ruslagryfja. Á hinu svæðinu fannst eitt mannvirki, það var vegghleðsla eða gerði sem erfitt er að túlka. Það hefur þó ekki verið með þaki og var hellulagt að hluta. Mögulega var það nýtt sem aðhald fyrir skepnur, geymsla eða skjól fyrir beð. Lítið af gripum fannst, þó var þar eitt keramikbrot sem erfitt er að aldursgreina almennilega, en það hefur verið frá því ca. 1500 - f. hl. 19. aldar. Aðrir gripir sem fundust á svæðinu voru m.a. dýrabein, leirker (frá f. hl. 20. aldar), glerflöskur frá því um 1960 og rúðuglerbrot, þó nokkuð af járni (t.d. naglar), viðarleifar og steinar.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Katanes í Hvalfjarðarsveit með staðsetningu merktri
Katanes í Hvalfjarðarsveit í dag · 64,3655° N, 21,7524° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 30. ágúst 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 12. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar á svæðinu (innan 1 km)

  • StekkjarhóllBeitarhús · Tóft (rúst) · 1550-1900Sést · Friðað

1 þessara minja er í mikilli eða bráðri hættu, vegna rasks. Nákvæm staðsetning minja í hættu er ekki birt.

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Á Wikipediu

Katanes
Katanes er jörð og samnefnt lítið nes í Hvalfjarðarsveit við utanverðan Hvalfjörð, norðan megin við fjörðinn og austan við iðnaðarhverfið og höfnina á Grundartanga. Jörðin er í landnámi Þormóðs gamla Bresasonar og tilheyrði áður Hvalfjarðarstrandarhreppi.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Rústirnar sjást á loftmynd svo gera má ráð fyrir að hægt sé að skoða þær

Myndir

Yfirlitskort (Ljósmyndara er ógetið).Hildur Gestsdóttir og Guðrún Alda Gísladóttir. (2015). Fornleifauppgröftur í Katanesi 2014. Framkvæmdarannsókn, bls. 6. (FS563-14182). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
Yngra mannvirki - fasi 2. Horft í suðvestur. (Ljósmyndara er ógetið).Hildur Gestsdóttir og Guðrún Alda Gísladóttir. (2015). Fornleifauppgröftur í Katanesi 2014. Framkvæmdarannsókn, bls. 12. (FS563-14182). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands