Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Mjóidalur í Norðurárdal

Mýrasýsla

Mjóidalur í Norðurárdal

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1837–1838 · 2 tímabil
Uppgraftaraðilar
Jón Jónsson og Magnús Jónsson (1837); Séra Þorsteinn Helgason (1838)
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Gripir · Grafir · Mannabein
Staðsetning
Áætluð

Uppgraftartímabil

  1. 1837
  2. 1838

Sagan

Tveir menn, að öllum líkindum bændur, þeir Jón Jónsson og Magnús Jónsson, grófu árið 1837 í það sem þeir lýsa sem hól eða hæð í botni Mjóadals. Í haugnum fundu þeir mannstennur, mislitan klæðabút, tvær kúptar nælur, þríblaðanælu, sörvistölur og tvo kúfíska silfurpeninga (frá árunum 917-927). Ári síðar fór séra Þorsteinn Helgason einnig á staðinn til að kanna kumlið betur og fann mannabeinaleifar og ryðgaðan járnbút sem líktist stórum hnífi eða sverði.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Mjóidalur í Norðurárdal með staðsetningu merktri
Mjóidalur í Norðurárdal í dag · 64,9136° N, 21,3564° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 16. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 27. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar á svæðinu (innan 1 km)

  • Tóft (rúst)Tóft (rúst) · 900-1900Sést illa · Friðað

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Myndir

Steinasörvi sem fannst í kumlinu, 25 tölur úr gleri og rafi.Sarpur. (e.d.). 10913/1930-323 [stafræn mynd]. Sótt 29. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=319068
Tveir kúfískir (persneskir) peningar sem fundust með steinasörvinu. Peningarnir eru úr silfri, annar er frá árunum 917 - 918 og hinn frá árunum 926 - 927.Sarpur. (e.d.). 10914-1/1930-324 [stafræn mynd]. Sótt 29. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=319069

Nánari fróðleikur

  • Kristján Eldjárn. (2016). Í Adolf Friðriksson (ritstjóri) Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi (3. útgáfa). Reykjavík: Mál og menning.