Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Neðranes

Mýrasýsla

Neðranes

Svarthvít loftmynd af svæðinu frá 1946
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð · Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1980
Uppgraftaraðilar
Lilja Árnadóttir
Tilgangur
Eftirlit með framkvæmdum
Aðferð og umfang
Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Fundir
Mannabein
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Sumarið 1980 var gröfuvinna í gangi við bæinn Neðranes í Stafholtstungum, en verið var að grafa fyrir nýju íbúðarhúsi austan við gamla bæinn. Við vinnuna kom upp þó nokkurt magn mannabeina og var Þjóðminjasafninu gert viðvart, sem sendi Lilju Árnadóttur á vettvang til að athuga málið, kanna beinaleifarnar og skoða hvort ummerki um grafir væru til staðar. Lilja tíndi saman beinin sem komið höfðu upp við gröfuvinnuna og gróf eftir þeim sem enn voru í jörðu, þó það væru ekki mörg slík eftir. Ekki sá hún merki um grafir heldur virtist frekar sem grafan hefði hitt á holu sem í hefði verið samtíningur af beinum. Beinin voru send í rannsókn og kom í ljós að þau voru úr í það minnsta tíu einstaklingum, á ýmsum aldri, frá börnum til fullorðinna. Lilja telur að beinin séu úr grafreit eða kirkjugarði sem hafi verið flutt í þessa holu eftir jarðrask á upphaflegum greftrunarstað, og að hugsanlega hafi því verið bænhús á staðnum á miðöldum þó þess sé ekki getið í rituðum heimildum.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Neðranes með staðsetningu merktri
Neðranes í dag · 64,6566° N, 21,5781° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. ágúst 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Nánari fróðleikur

  • Lilja Árnadóttir. (1982). Fundin mannabein í Neðranesi. Í Kristján Eldjárn (ritstsjóri), Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1981 (bls. 48 - 50). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.