Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Reykholtskirkja

Borgarfjarðarsýsla

Reykholtskirkja

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2001–2007 · 2 tímabil
Uppgraftaraðilar
Agnes Stefánsdóttir og Kristinn Magnússon (2001); Guðrún Sveinbjarnardóttir (2002-2007)
Tilgangur
Rannsókn vegna framkvæmda
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Grafir · Mannabein · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Uppgraftartímabil

  1. 2001
  2. 2002–2007

Sagan

Árið 1996 var ný kirkja tekin í notkun í Reykholti, en gamla kirkjan, sem byggð hafði verið árið 1887, hafði þá fengið lítið viðhald um nokkurt skeið. Þjóðminjasafnið ákvað svo árið 2000 að gamla kirkjan yrði tekin inn í húsasafn Þjóðminjasafnsins og gert yrði við hana. Til að hægt yrði að gera við kirkjuna á sem bestan hátt var ákveðið að taka hana af grunninum og byggja nýjan. Þá lá beinast við að grunnur hennar yrði rannsakaður af fornleifafræðingum enda Reykholt mikill sögustaður og án efa leyndust forvitnilegar fornleifar undir henni. Árið 2001 grófu Agnes Stefánsdóttir og Kristinn Magnússon fornleifafræðingar svæðið upp að hluta. Að sjálfsögðu fundust þó nokkrar mannvistarleifar, bæði rústir mannvirkja sem og ummerki um mannvist. t.d. dýrabein. Þá ber einna helst að nefna veggjarhleðslur og leifar fimm grafa, en einnig fundust leifar af smiðju á svæðinu sem skv. aldursgreiningum virðist hafa verið í notkun á 11. - 13. öld (Agnes Stefánsdóttir og Kristinn Magnússon, 2008).

Árið 2002 tók svo Guðrún Sveinbjarnardóttir, verkefnisstjóri Reykholtsrannsóknar, við uppgreftrinum á kirkjugrunninum og var hann að mestu framkvæmdur með styrkjum úr Kristnihátíðarsjóði, en hluti fjárframlagsins kom einnig úr ríkissjóði, fornleifasjóði, frá Snorrastofu, menntamálaráðuneytinu og Landsvirkjun. Rannsóknin á kirkjugrunninum, sem lauk árið 2007, sýndi að elstu leifar þar væru frá 11. öld og hafa verið samfelldar mannvistarleifar upp frá þeim tíma á svæðinu. Greinilegt er að útlit og skipulag kirkjunnar hefur breyst í tímans rás. Elsta kirkjan hefur að öllum líkindum alfarið verið úr timbri og hefur hún verið lítil og ferhyrnd. Í lagi næstu kirkjugerðar, sem aldursgreind er frá 12. og 13. öld, fundust m.a. leirkerjabrot frá Englandi og Þýskalandi, kambur og hringnæla með dýrshöfðum. Næsta kirkjugerð hefur verið frá 13. - 16. öld. Þá er kirkjan ekki lengur niðurgrafin, eins og forverar hennar, en er áfram úr timbri eins og fyrri kirkjur. Í þessu lagi fannst m.a. fallega skreyttur gullhringur og innsigli. Yngsta kirkjugerðin er svo frá 16. - 19. öld, hún er einnig byggð úr timbri en nú hefur verið bætt við hlífðarveggjum úr torfi og grjóti. Í þessu lagi fundust t.d. bókarspennsl og vörumerki af svokölluðu Kersey-klæði sem hefur verið innflutt frá Bretlandi, en að auki fundust í þessum byggingarfasa grafir háttsettra og fólks sem var þeim nákomið (Guðrún Sveinbjarnardóttir, 2009).

Gjóskulög á staðnum

1 gjóskulög hafa fundist í 4 jarðvegssniðum hér. Þau tímasetja jarðlögin sem rannsóknin fór í gegnum.

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · Hvað eru gjóskulög?

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Reykholtskirkja með staðsetningu merktri
Reykholtskirkja í dag · 64,6647° N, 21,2921° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 7. ágúst 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • SnorralaugLaug · Hlaðin gryfja · 870-1500Heillegar · Friðlýst minjar
  • Litli-Breiðabólstaður · 2 skráðar minjarTóft (rúst) · 870-1500Sést illa · Friðlýst minjar

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Á Wikipediu

Snorrastofa
Snorrastofa er menningarsetur og rannsóknarstofa í miðaldafræðum á hinu forna höfuðbóli Snorra Sturlusonar í Reykholti. Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að rannsóknum og miðlun á miðaldafræðum og sögu Borgarfjarðar.

Snorralaug í Reykholti
Snorralaug í Reykholti eða Snorralaug er íslensk laug sem finna má í Reykholti. Snorralaug var ein af hinum 10 fyrstu friðlýstu fornminjunum á Íslandi.

Reykholt (Borgarfirði)
Reykholt er skólasetur, kirkjustaður, prestsetur og gamalt höfuðból í Reykholtsdal í Borgarbyggð á Vesturlandi.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Hægt er að skoða leifar smiðjunnar undir gleri í gólfi gömlu kirkjunnar

Friðuð hús í nágrenninu

  • Reykholtskirkja eldri, Reykholt í Borgarfirði (1887) · Timburhús
  • Litli Breiðabólsstaður, Borgarnesi (1901) · Timburhús

Minjastofnun Íslands

Myndir

Hér er horft í vestur yfir uppgraftarsvæðið undir gömlu Reykholtskirkju. (Ljósmyndara er ógetið).Guðrún Sveinbjarnardóttir og Oscar Aldred. (2006). Reykholtskirkja. Fornleifarannsókn 2005 (Vinnuskýrslur fornleifa 2005: 2) (bls. 14). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. Hlekkur: https://www.thjodminjasafn.is/media/rannsoknir/2005-2-Reykholtskirkja.pdf
Hér er einnig horft í vestur yfir uppgraftarsvæðið, myndin er tekin þegar nær dregur uppgraftarlokum. (Ljósmyndara er ógetið).Guðrún Sveinbjarnardóttir og Oscar Aldred. (2006). Reykholtskirkja. Fornleifarannsókn 2005 (Vinnuskýrslur fornleifa 2005: 2) (bls. 1). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. Hlekkur: https://www.thjodminjasafn.is/media/rannsoknir/2005-2-Reykholtskirkja.pdf
Gullhringurinn sem fannst í uppgreftrinum. Hann er líklega frá því um 1500. (Ljósmyndara er ógetið).Guðrún Sveinbjarnardóttir og Oscar Aldred. (2006). Reykholtskirkja. Fornleifarannsókn 2005 (Vinnuskýrslur fornleifa 2005: 2) (bls. 23). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. Hlekkur: https://www.thjodminjasafn.is/media/rannsoknir/2005-2-Reykholtskirkja.pdf

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands