Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Bjarnastaðir

Mýrasýsla

Bjarnastaðir

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1909
Uppgraftaraðilar
Matthías Þórðarson
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Grafir · Mannabein · Mannvirki
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Sumarið 1909 var Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður, á skrásetningarferð um Borgarfjarðar- og Mýrarsýslu. Meðal þeirra staða sem hann heimsótti voru Bjarnastaðir, en Jónas Hallgrímsson hafði skrifað skýrslu um rústir sem sjáanlegar voru á svæðinu á fyrri hluta 19. aldar. Kristian Kålund hafði einnig getið um mannabein, sem voru að blása upp á Bjarnastöðum, í skýrslu sinni á síðari hluta 19. aldar, og nokkru síðar skoðar Brynjólfur Jónsson svæðið líka. Matthías nýtti því ferð sína og fór á staðinn til að kanna málið nánar. Í frásögn sinni talar Matthías um að í uppblásnu rjóðrinu séu sjáanlegar rústir eftir tvær byggingar og hefur verið byggt ofan í þær seinna meir, mögulega sauðahús þó Matthías sé ekki viss um það. Minni tóftin segir Matthías að sé mögulega kirkja en nærri tóftinni fann hann ryðgaðan nagla og lítið beinbrot. Aðeins austan við tóftina er steinabreiða, hvers steinar hafa verið fluttir á staðinn úr nágrenninu. Í þessari steinabreiðu fann Matthías leifar tveggja grunnra grafa. Nokkru grjóti og hellum var hlaðið við dysjarnar og voru stórir steinar í höfuðgafli þeirra beggja. Í annarri gröfinni fundust fúin beinabrot ásamt smáum tönnum úr dýri en í hinni fundust leggjarbein úr manni og fleiri beinabrot, en líklegt er að báðum gröfum hafi verið raskað á einhverjum tímapunkti. Þar sem engir gripir fundust í gröfunum áætlar Matthías að ekki sé um heiðnar grafir að ræða og leiðir líkum að því að þarna hafi verið byrjun kirkjugarðs.

Athugið að skv. skýrsluheitum virðast Bjarnastaðir hafa verið rannsakaðir betur árin 1984, 1989 og 2000, en skýrslurnar sem gefa þetta til kynna eru týndar eða hafa aldrei verið gefnar út (skv. upplýsingum frá Bókasafni Þjóðminjasafnsins). Um ræðir skýrsluheitin 1984/12: Fornleifakönnun á Bjarnastöðum í Hvítársíðu / Þór Magnússon; 1989/12: Eyðibýlin Bjarnastaðir og Kötlutún í Kalmanstungu / Guðmundur Ólafsson og 2000/18: Bjarnastaðir í Mýrasýslu, Borgarfirði. Rannsókn 18. og 19. ágúst. / Guðrún Sveinbjarnardóttir, Helgi Þorláksson.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Bjarnastaðir með staðsetningu merktri
Bjarnastaðir í dag · 64,7073° N, 21,0438° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 4. október 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. ágúst 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Að heimsækja

Friðuð hús í nágrenninu

  • Stóra-Áskirkja, Reykholt í Borgarfirði (1897) · Timburhús

Minjastofnun Íslands

Myndir

„Rannsókn á húsarúst á Bjarnastöðum í Hvítársíðu, þar sem hét Bænahóll.“ Ljósmyndari: Þór Eyfeld Magnússon. Myndin er úr uppgreftri árið 1984."Þór Eyfeld Magnússon. (1984). Skg-5845/1984-65-2 [stafræn mynd]. Sótt 28. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=661188"
„Hrafntinnumoli, óreglulega lagaður: þverm. mest 6 cm. Fundinn í rústum Bjarnastaða í Tungunni litlu. Óvíst hvaðan þangað kominn, en án efa af manna völdum. Sú trú hefur verið á hrafntinnu, að hana skyldi hafa (grafna) í kvíadyrum, til þess að ekki flygi undir ærnar. -Vegur 110 gr.“"Sarpur. (e.d.). 8170/1920-128 [stafræn mynd]. Sótt 28. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=313136"

Nánari fróðleikur

  • Matthías Þórðarson. (1910). Smávegis. Um nokkra staði og fornmenjar: Bjarnastaðir. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1909 (bls. 43 - 43). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands