Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Blundketilsskáli

Mýrasýsla

Blundketilsskáli

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1884
Uppgraftaraðilar
Sigurður Vigfússon
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Prufuskurðir · Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Sagan

Árið 1884 fór Sigurður Vigfússon, þjóðminjavörður, í rannsóknarleiðangur um Borgarfjörðinn. Á leið sinni skoðaði hann hina ýmsu sagnastaði og sjáanlegar rústir sem hann annað hvort gróf í eða lýsti betur út frá yfirborðskönnunum. Einn þeirra staða sem hann gerði rannsókn á var skáli skammt frá bænum Örnólfsdal í Borgarfirði. Tóftin sem um ræddi stóð á hól sem kallaður var Sjónarhóll. Sigurður lýsir tóftinni sem mjög langri, niðursokkinni og útflattri. Hann fékk þrjá menn með sér til að gera fimm könnunarskurði í rústirnar haustið 1884. Þeir nýttu einn dag í verkið og fundu fyrir ýmsar minjar sem renndu stoðum undir kenninguna að þarna væri um skála Blundketils að ræða, en samkvæmt sögunni á sá bær að hafa brunnið í Blundketilsbrennu á 10. öld. Nægar brunaleifar virðist Sigurður hafa fundið en hann talar um hina ýmsu tegundir ösku sem fannst í fjórum af könnunarskurðunum fimm, m.a. viðarösku, rauða ösku, rofaösku, gjall, brunna steina og dýrabein. Einnig bendir Sigurður á að veggjarhrun rústarinnar sé einkennilegt. Hann bendir á að hrunið sé svo mikið að það virðist sem veggirnir hafi fallið á stuttum tíma, líkt og í bruna, frekar en að skálinn hafi orðið náttúrunni að bráð og veggirnir þá hrunið hægt í tímans rás. Einnig fundust leifar brunns skammt frá tóftinni, en í hann hefur verið sótt neysluvatn.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Blundketilsskáli með staðsetningu merktri
Blundketilsskáli í dag · 64,7631° N, 21,2907° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 16. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 7. ágúst 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • Sjónarhóll · 2 skráðar minjarTóft (rúst) · 870-1300Sést · Friðlýst minjar

Þekkt úr rituðum heimildum

  • KirkjurústÞekkt úr rituðum heimildum

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Að heimsækja

Rústir eru sjáanlegar á loftmynd svo gera má ráð fyrir að hægt sé að skoða þær

Myndir

Teikning Sigurðar af skálanum.Sigurður Vigfússon. (1885). Rannsókn í Borgarfirði 1884: Örnólfsdalur, Blundketilsbrenna. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1884 - 1885. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Nánari fróðleikur

  • Sigurður Vigfússon. (1885). Rannsókn í Borgarfirði 1884: Örnólfsdalur, Blundketilsbrenna. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1884 - 1885 (bls. 135 - 137). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.