Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Geirsdys

Borgarfjarðarsýsla

Geirsdys

Svarthvít loftmynd af svæðinu frá 1945
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð · Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1880
Uppgraftaraðilar
Sigurður Vigfússon
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Fornleifafræðingurinn Sigurður Vigfússon og félagar höfðu verið að grafa upp tóft í nágrenninu og ákvað Sigurður að nýta tímann og mannsaflann til að grafa upp hina svokölluðu Geirsdys líka. Geirsdys átti að hafa verið sjáanleg á yfirborðinu og var hún staðsett á Þyrilsnesi í Hvalfirði. Grafið var niður á berghellu en engin ummerki um bein eða aðrar mannvistarleifar fundust. Sigurður talar um að hafa séð eina svarta rák í moldinni sem hann telur hafa verið plöntuleifar.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Geirsdys með staðsetningu merktri
Geirsdys í dag · 64,3732° N, 21,4542° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. júlí 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Nánari fróðleikur

  • Sigurður Vigfússon. (1881). Rannsókn á blóthúsinu að Þyrli og fleira í Hvalfirði og um Kjalarnes. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1880 - 1881 (bls. 65 - 78). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands