Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Gilsbakki

Mýrasýsla

Gilsbakki

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2008–2009
Uppgraftaraðilar
Kevin P. Smith
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Sumarið 2008 voru teknir könnunarskurðir í landi Gilsbakka í Hvítársíðu, undir handleiðslu Kevins P. Smith. Gerðir voru tveir könnunarskurðir og jarðvegssýnum safnað til greiningar. Minjarnar sem komu í ljós báru það augljóslega með sér að byggingarnar á svæðinu hafa reglulega verið rifnar og endurbyggðar í tímans rás, en auk þess eru skýr merki um búfjárræktun á svæðinu, þá helst kindarækt. Af jarðvegssýnunum að dæma virðist þó lítið hafa breyst hvað varðar neyslumynstur ábúenda á Gilsbakka, en Kevin segir að á 700-1100 árum hafi lítið breyst í matarræði heimilismanna auk þess sem sömu dýrin eru haldin á staðnum, en mannvistarleifarnar spanna frá því upp úr landnámi og ná fram yfir aldamótin 1900. Í könnunarskurðunum fundust ýmis dýrabein, bæði brennd og óbrennd, ásamt margs konar gripum m.a. úr járni, kopar, blýi, steinum o.fl. Auk þess fundust gjallbútar sem gefa hugmynd um að járn hafi verið unnið á staðnum, ásamt gripum tengdum vefnaðarframleiðslu, og gler- og keramikbrota sem aldursgreina má til 16. - 19. aldar. Samvkæmt upplýsingum um veitt uppgraftarleyfi, á vef Minjastofnunar, sést að Kevin hefur fengið uppgraftarleyfi til framhaldsrannsóknar á Gilsbakka 2009 (Minjastofnun, e.d.). Því miður hefur ekki verið gefin út skýrsla eða aðrar upplýsingar um það sem kom fram í uppgreftrinum það sumarið og ekki náðist í Kevin við vinnslu verkefnisins.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Gilsbakki með staðsetningu merktri
Gilsbakki í dag · 64,7218° N, 20,9835° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 4. október 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 12. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Þekkt úr rituðum heimildum

  • Þekkt úr rituðum heimildumÞekkt úr rituðum heimildum · Leið

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Á Wikipediu

Gilsbakki (Hvítársíðu)
Gilsbakki er bújörð og kirkjustaður í Hvítársíðu í Borgarbyggð.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Friðuð hús í nágrenninu

  • Gilsbakki, Borgarnesi (1917)
  • Gilsbakkakirkja, Borgarnesi (1908) · Timburhús

Minjastofnun Íslands

Myndir

Norðursnið í öðrum könnunarskurðinum. Ljósmyndari: Kevin Martin.Smith, Kevin P. (2009). Gilsbakki in Hvítársíða, Western Iceland: Preliminary Report of 2008 Investigations (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No.1), (bls. 35). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.
Hér sést í suðaustur yfir hinn könnunarskurðin. Hægra megin við upplýsingatöfluna sem stendur á bakkanum má sjá hvar sýni hefur verið tekið úr jarðveginum til greiningar. Steinarnir vinstra megin í skurðinum eru að öllum líkindum leifar af torfveggi frá 14. öld. (Ljósmyndari ekki tekinn fram í skýrslu).Smith, Kevin P. (2009). Gilsbakki in Hvítársíða, Western Iceland: Preliminary Report of 2008 Investigations (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No.1), (bls. 60). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.
Vasahnífur, mögulega frá miðri 17. öld fannst í uppgreftrinum. (Ljósmyndari ekki tekinn fram í skýrslu).Smith, Kevin P. (2009). Gilsbakki in Hvítársíða, Western Iceland: Preliminary Report of 2008 Investigations (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No.1), (bls. 73). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.
Horft yfir uppgraftarsvæðið í áttina að kirkjunni á Gilsbakka. (Ljósmyndari ekki tekinn fram í skýrslu).Smith, Kevin P. (2009). Gilsbakki in Hvítársíða, Western Iceland: Preliminary Report of 2008 Investigations (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No.1), (bls. 1). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands