Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Granastaðir

Mýrasýsla

Granastaðir

Svarthvít loftmynd af svæðinu frá 1945
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð · Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1896
Uppgraftaraðilar
Brynjólfur Jónsson
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Prufuskurðir · Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Fundir
Mannvirki
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Sumarið 1896 fór Brynjólfur Jónsson, fræðimaður, í rannsóknarleiðangur um hluta vesturlands. Hann skoðaði þá m.a. tóftir sem hann fann við Granastaði í Borgarnesi (sem áður var kallað Digranes). Brynjólfur talar um þrjár tóftir en segir erfitt að átta sig á legu þeirra. Tvær þeirra hafa líklega verið stekkjartóftir og er ein rúst af byggingu, nokkuð stórri, líklega samsettri úr nokkrum tóftum eða herbergjum og hefur hún verið rúmir 22 metrar á eina hlið og tæpir 17 metrar á hina hliðina. Gerðir voru könnunarskurðir á nokkrum stöðum í tóftaröðina, m.a. til að reyna að átta sig á því hvernig hún sneri, en lítið kom í ljós. Að lokum þurfti að hætta greftrinum vegna veðurs en Brynjólfur segist hafa gengið þannig frá tóftinni að hægt væri að rannsaka hana betur síðar.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Granastaðir með staðsetningu merktri
Granastaðir í dag · 64,5512° N, 21,9095° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 12. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Á Wikipediu

Borgarnes
Borgarnes er bær á samnefndu nesi við Borgarfjörð. Íbúafjöldi er 2.147 (2024) og er bærinn kjarni sveitarfélagsins Borgarbyggðar og þjónustumiðstöð fyrir nágrannasveitirnar auk þess að vera vinsæll áningarstaður ferðafólks.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Friðuð hús í nágrenninu

  • Borgarbraut 49, Borgarnesi (1920) · Steinsteypt hús
  • Borgarbraut 47, Borgarnesi (1915) · Steinsteypt hús
  • Borgarbraut 48, Borgarnesi (1914) · Steinsteypt hús
  • Hlíðartúnshús, Borgarnesi (1919) · Torfhús
  • Borgarkirkja, Borgarnesi (1880) · Timburhús
  • Borgarbraut 30, Borgarnesi (1913) · Steinsteypt - hlaðið
  • Borgarbraut 29, Borgarnesi (1910) · Steinsteypt hús
  • Borgarbraut 25 A, Borgarnesi (1908) · Steinsteypt hús

Minjastofnun Íslands

Nánari fróðleikur

  • Brynjólfur Jónsson. (1897). Rannsókn í Mýra- Hnappadals- og Snæfellssýslum sumarið 1896: Granastaðir. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1897 (bls. 3 - 4). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands