Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Hallmundarhellir

Mýrasýsla

Hallmundarhellir

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1958–2017 · 2 tímabil
Uppgraftaraðilar
Gísli Gestsson og Guðmundur Kjartansson (1958); Kevin Smith o.fl. (2017)
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Staðsetning
Áætluð

Uppgraftartímabil

  1. 1958
  2. 2017

Sagan

Hallmundarhellir var rannsakaður af Gísla Gestssyni, safnverði í Þjóðminjasafni Íslands, ásamt Guðmundi Kjartanssyni, jarðfræðingi, árið 1958. Tveimur árum áður, eða árið 1956, hafði Kalman bóndi í Kalmanstungu fundið hellinn. Hellismunninn hafði þá verið hálffullur af sandi. Við rannsókn Gísla og Guðmundar fundust greinilegar mannvistarleifar; mannhlaðnir veggir og varnarveggur við inngang, auk beinabrota (aðallega af kindum og voru beinin þá brotin til mergjar) og hrossatanna. Einnig fundu þeir tvær litlar pjötlur úr kopar eða látuni, ásamt brotnu brýni. Smávægilegar eldleifar, viðarkol og aska fundust á einum stað í hellinum. Rannsakendurnir, Gísli og Guðmundur, benda á að í nágrenni hellisins sé lítill sem enginn gróður svo fé hefur líklega ekki leitað þangað upp á sitt eindæmi. Þó sýna beinaleifar, sem fundust á staðnum, að kindum hefur verið slátrað á staðnum og bendir það til þess að þarna hafi útilegumenn eða skógarmenn hafst fyrir. Erfitt hefur þótt að áætla búsetu í hellinum en miðað við sandfok sem þar hefur safnast saman hefur það verið í það minnsta frá því um 1700, þó líklega fyrr. (Gísli Gestsson, 1960).

Árið 2017 fór hópur fornleifafræðinga, þ.á.m. Kevin Smith sem var fremstur í flokki í rannsókn Surtshellis og afhella hans, og Guðmundur Ólafsson sem einnig rannsakaði Surtshelli og Víðgelmi, í könnunarleiðangur í Hallmundarhelli. Var tilgangur leiðangursins m.a. að kortleggja minjarnar í hellinum og taka sýni úr dýrabeinum sem þar fundust til að aldursgreina mannabúsetu í hellinum. Í grófum dráttum breittust upplýsingar lítið, en uppdráttur Gísla af hellinum var að mestu leyti nákvæmur. Minjarnar sjálfar reyndust þó aðeins flóknari en áður hafði verið talið. Beinin sem þar fundust voru t.d. meira dreifð um hellisgólfið og fundust ekki hrossatennur eða gripir í leiðangrinum 2017. Greining á beinunum (sem flestöll voru úr kindum) benti til að þau væru að stórum hluta til úr unglömbum og fullorðnum kindum. Geislakolsaldursgreiningar voru einnig gerðar á beinunum og benda niðurstöður þeirra til þess að hellirinn hafi verið nýttur af og til á tímabilinu 1180 - 1260. Þessar niðurstöður bera því með sér að Hallmundarhellir var ekki í notkun á sama tíma og hinir hellarnir á svæðinu, sem hafa að geyma fornleifar, þ.e. Surtshellir og Víðgelmir. (Kevin P. Smith o.fl., 2019).

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Hallmundarhellir með staðsetningu merktri
Hallmundarhellir í dag · 64,8375° N, 20,4309° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 4. október 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 18. ágúst 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Myndir

Teikning Gísla Gestssonar af hellinum: „Gólflötur hellisins með varnarvegg og svefnbálki.“Gísli Gestsson. (1960). Hallmundarhellir. Í Kristján Eldjárn (ritstjóri), Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1960 (bls. 78). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.
Yfirlitsteikning Kevins Smith á minjum í Hallmundarhelli.Kevin P. Smith, Guðmundur Ólafsson, Albína Hulda Pálsdóttir og Magnús A. Sigurðsson. (2019). Hallmundarhellir Cave: Report of Investigations, 2017 (bls. 23). (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No. 5). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.
Hér má sjá manngerðar hleðslur inni í hellinum. Líklega er hér um að ræða flet (lengst til vinstri), kró (í miðjunni) og mögulegt eldstæði (lengst til vinstri). Ljósmyndari er Joe James og/eða Evan Stone.Kevin P. Smith, Guðmundur Ólafsson, Albína Hulda Pálsdóttir og Magnús A. Sigurðsson. (2019). Hallmundarhellir Cave: Report of Investigations, 2017 (bls. 29). (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No. 5). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.
Hér sést yfir innganginn í Hallmundarhelli og sést vel hversu mikill sandur hefur safnast að hellismunnanum. Ljósmyndari er Kevin P. Smith.Kevin P. Smith, Guðmundur Ólafsson, Albína Hulda Pálsdóttir og Magnús A. Sigurðsson. (2019). Hallmundarhellir Cave: Report of Investigations, 2017 (bls. 15). (Research Reports of the Circumpolar Laboratory, No. 5). Providence: Haffenreffer Museum of Anthropology, Brown University.

Nánari fróðleikur