Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Háls í Hálsasveit

Borgarfjarðarsýsla

Háls í Hálsasveit

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1987–1997 · 3 tímabil
Uppgraftaraðilar
Kevin P. Smith
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Staðsetning
Áætluð

Uppgraftartímabil

  1. 1987–1988
  2. 1991
  3. 1996–1997

Sagan

Þegar hefjast átti handa við fornleifarannsóknirnar í Reykholti árið 1987 var tilvalið að skoða fleiri miðaldabæjarstæði í nágrenninu til að fá gott samhengi milli minjanna. Þá var ákveðið að ráðast í rannsókn á Hálsi í Hálsasveit einnig. Kevin P. Smith hélt utan um fornleifarannsóknina á Hálsi sem fóru fram árin 1987-1988, 1991 og 1996-1997. Því miður virðist sem Kevin hafi aðeins gefið út skýrslu um fyrsta rannsóknartímabilið, en skv. heimildum frá Fornleifavernd, sem starfaði á sínum tíma undir menntamálaráðuneytinu, fékk Kevin einnig uppgraftarleyfi á Hálsi sumrin 1991 (könnunarholur), ásamt 1996 og 1997 (fornleifarannsókn) (Björn Bjarnason, 1999).

Ekki náðist í Kevin Smith til að gefa nánari upplýsingar um niðurstöður seinni uppgraftartímabilanna.

Á fyrsta rannsóknartímabilinu (1987-1988) var minjasvæðið teiknað upp ásamt því að taka jarðvegssýni og gera könnunarskurð í aðalrústina. Á svæðinu voru fjórar rústir, fjórir hlaðnir garðar ásamt tveimur dældum í landslaginu sem gætu verið af mannavöldum. Gáfu minjarnar til kynna að hér væri um að ræða bæjarstæði frá miðöldum (eða 11. öld), sem hefur lagst í eyði á 14. öldinni. Kevin leggur til að rústirnar fjórar séu af bæjarhúsi, sem var rúmir 20 metrar á lengd, um 8 metrar á breidd og skiptist í þrjú rými, lítið útihús, fjárhús eða fjós og að lokum hringlaga torfvegg sem var um 5 metrar í þvermál. Ekki fundust margir gripir í könnunarrannsókninni fyrstu tvö sumrin en áhugavert var að samkvæmt greiningum á jarðvegssýnum hefur norskur viður verið nýttur sem eldiviður stuttu áður en bærinn lagðist í eyði. Þetta sýnir tengslin á milli landanna en ekki er ljóst hvort ábúendur bæjarins hafi brennt dýrmætan norskan við af illri nauðsyn eða vegna þess að um var að ræða vel stætt fólk sem hafði ráð á slíku (Smith, 1988).

Eins og áður sagði hefur Kevin ekki gefið út skýrslur um uppgreftrina sem fóru fram árin 1991 og 1996-1997 en hægt er að lesa viðtal við hann í Morgunblaðinu, sem tekið var sumarið 1996, til að fá hugmynd um hvað verið var að grafa upp á svæðinu þá. Svo virðist sem þó nokkrar leifar af gjalli hafi fundist á svæðinu á þessum tíma. Gjallið verður til við járnvinnslu og virðist vinnsla þess hafa hafist á svipuðum tíma og bærinn var byggður. Í viðtalinu segir Kevin að býlið hafi takið nokkrum breytingum meðan það var notað, verið rifið og endurbyggt, en það hafi svo verið yfirgefið í lok 13. aldar. Járnvinnslusvæðið hefur verið nokkuð stórt miðað við aðra járnvinnslustaði sem fundist hafa á landinu, en ekki var víst á þessum tíma hvort um var að ræða járnvinnslu til einkanota eða til framleiðslu söluvara. Áhugavert þykir að járnvinnsla þarfnast mikils magns viðar til brennslu sem þýðir að nokkur trjágróður hefur þurft að vera á svæðinu (og bendir Kevin einmitt á að upplýsingar um skóg á svæðinu komi fram í rituðum heimildum frá 13. öld). Ekki er þó ljóst á þessum tíma hvað varð til þess að bærinn lagðist í eyði (Rannsakar járnvinnslu á miðöldum, 1996).

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Háls í Hálsasveit með staðsetningu merktri
Háls í Hálsasveit í dag · 64,6808° N, 21,0845° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. ágúst 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar á svæðinu (innan 1 km)

  • Háls · 8 skráðar minjarSmiðja · Gjall (frá járnvinnslu), Tóft (rúst), Garðlag (hlaðinn garður) · 870-1500Sést, Sést illa · Friðlýst minjar

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Á Wikipediu

Giljafoss
Giljafoss er ofarlega í Reykjadalsá og sést víða að úr Reykholtsdal. Manngengt er á bak við Giljafoss svo komast má þar undir ána þurrum fótum.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Myndir

Naglar og járnhlutur sem fundust í uppgreftrinum."Þjóðminjasafn Íslands. (1997). 54/1997-53-2 [stafræn mynd]. Sótt 31. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1578295"
Glerperla sem fannst í uppgreftrinum."Þjóðminjasafn Íslands. (1997). 58/1997-53-6 [stafræn mynd]. Sótt 31. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1578349"
Ljósmynd sem fylgdi viðtali við Kevin í Morgunblaðinu, sumarið 1996. Kevin Smith er fyrir miðju en með honum eru Elisabeth Hamilton, málmfræðingur og Rachel Scott, nemi. Uppgraftarsvæðið má sjá í bakgrunni myndarinnar.Morgunblaðið/Bernhard (1996). Rannsakar járnvinnslu á miðöldum. (1996, 5. júlí). Morgunblaðið, bls. 10.

Nánari fróðleikur