Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Hæll í Flókadal

Borgarfjarðarsýsla

Hæll í Flókadal

Svarthvít loftmynd af svæðinu frá 1945
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð · Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1996
Uppgraftaraðilar
Guðmundur Ólafsson
Tilgangur
Rannsókn vegna framkvæmda
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Mannabein · Grafir
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Grafir fundust við gröfuvinnu og var þá fornleifafræðingur kallaður til. Guðmundur Ólafsson, fornleifafræðingur, kom á staðinn, hreinsaði frá beinum og fann leifar af þremur gröfum sem hann gróf upp. Beinafræðingur greindi beinin úr gröfunum þremur og komst að eftirfarandi niðurstöðu. Í einni gröfinni var að finna bein úr karlmanni um þrítugt. Úr næstu gröf voru bein úr tveimur einstaklingum, illa farin og vantaði töluvert í þau, og þess vegna var erfitt að greina t.d. kyn, en beinin virðast vera úr karlmanni og barni (barnið hefur verið u.þ.b. 18 mánaða gamalt). Þriðja gröfin var illa farin eftir gröfuvinnu en í henni voru bein nokkurra einstaklinga, líklegast úr einum karlmanni, sterklega byggðum á aldrinum 40-50 ára og 3-4 börnum (eitt þeirra u.þ.b. 9-10 ára, annað 5-6 ára og þriðja 2-3 ára, ásamt broti af bringubeini fjórða barnsins sem líklega var um 2-3 ára, en ekki hægt að staðfesta það.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Hæll í Flókadal með staðsetningu merktri
Hæll í Flókadal í dag · 64,6162° N, 21,3630° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 27. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Nánari fróðleikur

  • Guðmundur Ólafsson. (1996). Beinafundur á Hæli í Flókadal. (1996/5). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.