Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Reyðarfell

Borgarfjarðarsýsla

Reyðarfell

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1960–1966
Uppgraftaraðilar
Þorkell Grímsson
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Sagan

Árin 1960 - 1966 hélt Þorkell Grímsson utan um stóran fornleifauppgröft við Reyðarfell, skammt frá Húsafelli. Á gamla túni bæjarins mátti sjá í það minnsta 7 tóftir og var grafið í þá stærstu, þ.e. íbúðarhúsið. Húsarústin sem grafin var upp var samsett úr 4 herbergjum sem sjá má á teikningu hér við. Inngangurinn er neðst á teikningunni fyrir miðju, þá er skálinn hægra megin við anddyrið (vestast) en í honum voru flet upp við veggina, stofan vinstra megin og baðstofa í útbyggingunni til suðurs. Skemma hefur svo verið í rýminu lengst til vinstri á teikningunni (austast). Rústin öll er um 27 metrar á lengd og 16 metrar á breidd og hafa útveggir verið úr torfi og grjóti. Gólf hússins hefur verið hellulagt að hluta, með eldstæðum og bera minjarnar þess merkis að veggir hafi mögulega verið þiljaðir. Í skemmunni fundust leifar járnofna og gjalls, en ýmsir gripir fundust, m.a. brýni, naglar og lás með miðaldasniði. Eldri minjar eru líklega undir skálanum því Þorkell og félagar fundu þar leifar gangs úr torfi.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Reyðarfell með staðsetningu merktri
Reyðarfell í dag · 64,6948° N, 20,8975° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 4. október 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. júlí 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • ReyðarfellHíbýli · Niðurgröftur (grafin hola) · 870-1600Sést illa · Friðlýst minjar
  • MannvirkiVatnsmylla · Mannvirki · 1800-1900Lélegt ástand · Friðað
  • MannvirkiVatnsmylla · Mannvirki · 1839-1868Sæmilegt ástand · Friðað
  • MannvirkiVatnsmylla · Mannvirki · 1800-1900Lélegt ástand · Friðað

Sagnir og þjóðtrú í nágrenninu

  • Þekkt af örnefniVað · Þekkt af örnefni · 954 m

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Að heimsækja

Rústir eru sjáanlegar á loftmynd svo gera má ráð fyrir að hægt sé að skoða þær

Friðuð hús í nágrenninu

  • Húsafell - gamla íbúðarhúsið, Reykholt í Borgarfirði (1908) · Timburhús

Minjastofnun Íslands

Myndir

Hér er horft í vestur yfir uppgröftinn, sjá má skálann og hellurnar í gólfi hans, ásamt hluta anddyrisins. (Ljósmyndara er ógetið).Þorkell Grímsson. (1976). Miðaldabyggð á Reyðarfelli. Í Guðni Kolbeinsson (ritstj.), Minjar og menntir. Afmælisrit helgað Kristjáni Eldjárn. (bls. 568). Reykjavík: Bókaútgáfa menningarsjóðs.
Hér má sjá teikningu Þorkels af rústinni (norður snýr niður á teikningunni). Skemman er rýmið lengst til vinstri, þá er stofan fyrir miðju, þá anddyrið og skálinn er hægra megin. Upp úr teikningunni er svo baðstofan.Þorkell Grímsson. (1976). Miðaldabyggð á Reyðarfelli. Í Guðni Kolbeinsson (ritstj.), Minjar og menntir. Afmælisrit helgað Kristjáni Eldjárn. (bls. 574). Reykjavík: Bókaútgáfa menningarsjóðs.
Nokkrir gripir sem fundust á Reyðarfelli. Í efri röð frá vinstri má sjá klébergsbrot úr íláti, brot úr brýni, hylki úr eir, hengilás úr járni. Í neðri röð frá vinstri má sjá brýni og tvo járnnagla. (Ljósmyndara er ógetið).Þorkell Grímsson. (1976). Miðaldabyggð á Reyðarfelli. Í Guðni Kolbeinsson (ritstj.), Minjar og menntir. Afmælisrit helgað Kristjáni Eldjárn. (bls. 572). Reykjavík: Bókaútgáfa menningarsjóðs.

Nánari fróðleikur

  • Þorkell Grímsson. (1976). Miðaldabyggð á Reyðarfelli. Í Guðni Kolbeinsson (ritstj.), Minjar og menntir. Afmælisrit helgað Kristjáni Eldjárn. (bls. 565-576). Reykjavík: Bókaútgáfa menningarsjóðs.