Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Skallagrímshaugur

Mýrasýsla

Skallagrímshaugur

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1896
Uppgraftaraðilar
Bændur á staðnum (ártal óvíst); Brynjólfur Jónsson (1896)
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Grafir
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Sagan

Sumarið 1896 var Brynjúlfur Jónsson, fræðimaður, á rannsóknarferð m.a. í Borgarfirði. Hann skoðaði þá hinn svokallaða Skallagrímshaug í Borgarnesi (sem áður fyrr var kallað Digranes). Í frásögn sinni segir hann frá fyrri tilraunum til að grafa í hauginn, sem staðsettur er í Skallagrímsdal. Árið 1866 höfðu bændur í nágrenninu rofið hauginn (sem þó hafði verið grafið í áður skv. munnmælum). Haugurinn var skv. bændunum ávöl grjóthrúga með stóru bjargi á toppnum. Þeir veltu bjarginu af en undir því var steinþró full af sandi og aur. Þeir fjarlægðu grjót og jarðveg ofan af haugnum þar til þeir komu niður á móhellu en á botni hennar mátti sjá miklar járnleifar, en ekkert bein eða aðra gripi. Bændurnir virðast ekki hafa grafið neðar en þetta. Í ferð sinni lét Brynjúlfur þá grafa ofan af haugnum aftur en bætir litlu við frásögn bændanna öðru en að hann hafi fundið í haugnum brot af hesttönn. Hann bendir á að skv. sögunni hafi hestur Skallagríms verið grafinn með honum og gæti þetta brot verið úr þeim hesti, eða að hesturinn hafi verið grafinn í þessum haug og Skallagrímur sjálfur annars staðar. Brynjúlfur vill þó ekki staðhæfa neitt um slíkt þar sem engar aðrar minjar var að finna sem mætti draga frekari ályktanir út frá.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Skallagrímshaugur með staðsetningu merktri
Skallagrímshaugur í dag · 64,5394° N, 21,9202° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 12. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • SkallagrímshaugurHaugur · Hóll · 870-1300Sést vel · Friðlýst minjar
  • ÁletrunKennimark · Áletrun · 870-1300Sést vel · Friðlýst minjar

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Á Wikipediu

Skallagrímsgarður
Skallagrímsgarður er lystigarður í Borgarnesi miðju, upp af Kveldúlfsvík. Íþróttafélagið Skallagrímur og Kvenfélag Borgarness keyptu túnblettinn þar sem garðurinn er árið 1930.

Gamla mjólkursamlagið í Borgarnesi
Gamla mjólkursamlagið í Borgarnesi var hannað af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, fyrir Kaupfélag Borgfirðinga. Eftir að Mjólkursamlag Borgfirðinga flutti í stærra húsnæði á Engjaási var byggingavörudeild kaupfélagsins flutt þangað þar til sú starfsemi var flutt annað.

Borgarnes
Borgarnes er bær á samnefndu nesi við Borgarfjörð. Íbúafjöldi er 2.147 (2024) og er bærinn kjarni sveitarfélagsins Borgarbyggðar og þjónustumiðstöð fyrir nágrannasveitirnar auk þess að vera vinsæll áningarstaður ferðafólks.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Hægt er að skoða hauginn en hann var endurbyggður árið 1890

Friðuð hús í nágrenninu

  • Borgarbraut 16, Borgarnesi (1908) · Timburhús
  • Borgarbraut 16 - útihúsi, Borgarnesi (1920)
  • Borgarbraut 21, Borgarnesi (1920) · Timburhús
  • Hvammur í Dal (Dalhúsið - Dalur), Borgarnesi (1906) · Timburhús
  • Borgarbraut 19, Borgarnesi (1918) · Steinsteypt hús
  • Gunnlaugsgata 20, Borgarnesi (1920) · Timburhús
  • Borgarbraut 25 B, Borgarnesi (1912) · Steinsteypt hús
  • Borgarbraut 15, Borgarnesi (1920) · Timburhús

Minjastofnun Íslands

Myndir

Hér má sjá Skallagrímshaug í skrúðgarðinum í Borgarnesi."Geri, Helena. (2015). Skallagrimsgardur -Borgarnes Park [stafræn mynd]. Sótt 29. ágúst 2020 af https://www.google.com/maps/contrib/104326536107463634046/place/ChIJFcptTJ7I1UgRjuamVniG2iY/@64.5569568,-20.5057934,8z/data=!4m6!1m5!8m4!1e2!2s104326536107463634046!3m1!1e1"

Nánari fróðleikur

  • Brynjólfur Jónsson. (1897). Rannsókn í Mýra- Hnappadals- og Snæfellssýslum sumarið 1896: Skallagrímshaugur. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1897 (bls. 6 - 8). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands