Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Skáney í Reykholtsdal

Borgarfjarðarsýsla

Skáney í Reykholtsdal

Svarthvít loftmynd af svæðinu frá 1946
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð · Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1934
Uppgraftaraðilar
Matthías Þórðarson
Tilgangur
Rannsókn vegna framkvæmda
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Gripir · Grafir · Mannabein
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Um haustið 1934 var haft samband við Matthías Þórðarson þjóðminjavörð, um mannabein sem fundist höfðu í hól í túninu á Skáney í Reykholtsdal. Hóllinn var jafnan kallaður Gullhóll, en verið var að grafa gryfju í hann til að geyma kartöflur í þegar beinin komu í ljós. Matthías mætti á svæðið og gróf beinin upp sem hann telur hafa verið úr nokkrum einstaklingum en þau virtust ekki sérstaklega gömul af útlitinu að dæma. Hann segir beinin hafa verið úr tveimur til þremur fullorðnum karlmönnum og úr einu litlu barni. Í haugnum fann hann einnig tvö leirkerjabrot sem hann segir ekki virðast eldri en frá fyrri hluta 19. aldar og virðast hafa verið sett ofan í gryfjuna með beinunum á sama tíma. Matthías getur sér einnig til um að beinin komi mögulega úr kirkjugarði í nágrenninu og hafi verið sett í Gullhól eftir rask.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Skáney í Reykholtsdal með staðsetningu merktri
Skáney í Reykholtsdal í dag · 64,6764° N, 21,3291° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 27. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Gjóskulög í nágrenninu (innan 2 km): Katla 1721, Hekla 1693, Miðaldalagið (1226), Landnámslagið (um 877). Hvað eru gjóskulög?

Nánari fróðleikur

  • Matthías Þórðarson. (1936). Rannsókn nokkurra forndysja o.fl.: Mannabein, fundin á Skáney í Reykholtsdal. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1933 - 1936 (bls. 44 - 45). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands