Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Skógarnes

Mýrasýsla

Skógarnes

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2008
Uppgraftaraðilar
Kevin P. Smith
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Samkvæmt upplýsingum um veitt leyfi til fornleifauppgraftar árið 2008 hefur Kevin P. Smith fengið leyfi til rannsóknar á Skógarnesi í Borgarbyggð. Þar kemur fram að leyfi er veitt til sýnatöku og könnunarskurða svo líklega hefur uppgröfturinn ekki verið yfirgripsmikill (Minjastofnun, e.d.). Skýrsla hefur þó ekki verið gefin út um rannsóknina og því miður náðist ekki í Kevin við vinnslu verkefnisins til að veita nánari upplýsingar. Þó má finna eitt upplýsingaplagg um uppgröftinn á veraldarvefnum, sem Kevin hefur sett saman, en þar kemur fram að svæðið tengdist vinnslu reiðings (mjúkt torf sem sett var ofan á bak hests til að festa klyfberann á svo hesturinn gæti flutt þungar vörur, á borð við timbur og kol, á milli staða). Rannsóknin sýndi að um 11.000 rúmmetrar af reiðingi hafa verið unnir á Skógarnesi, en svæðið er um 12.000 fermetrar að stærð.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Skógarnes með staðsetningu merktri
Skógarnes í dag · 64,6571° N, 21,5504° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1946 af svæðinu
Úr lofti 27. október 1946 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 7. ágúst 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Sagnir og þjóðtrú í nágrenninu

  • ÁlfhóllHuldufólksbústaður · Þekkt úr rituðum heimildum · 1,3 km

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Að heimsækja

Friðuð hús í nágrenninu

  • Efra-Nes, Borgarnesi (1912) · Steinsteypt hús

Minjastofnun Íslands

Myndir

Hér má sjá mynd af reiðingi. Athugið að myndin er ekki frá Skógarnesi heldur kemur þessi reiðingur frá Svínafelli í Öræfum.Þjóðminjasafn Íslands. (2008). NMs-215558/2008-5-676 [stafræn mynd]. Sótt 31. ágúst 2020 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=347220
Hér má sjá teikningu af því hvernig klyfberinn fer ofan á reiðinginn (reiðingurinn er merktur nr. 11).Byggðasafnið Skagfirðinga. (e.d.). Gömul reiðver [stafræn mynd]. Sótt 31. ágúst 2020 af http://www.glaumbaer.is/is/gagnabanki/gomul-reidver