Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Stóra Drageyri

Borgarfjarðarsýsla

Stóra Drageyri

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2016
Uppgraftaraðilar
Lísabet Guðmundsdóttir
Tilgangur
Rannsókn vegna framkvæmda
Aðferð og umfang
Minniháttar rannsókn
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki

Rannsóknarleyfi Minjastofnunar

Tengd sjálfkrafa eftir staðsetningu; Una á eftir að staðfesta.

Sagan

Árið 2016 var hitaveituskurður grafinn í gegnum tún og norðurjaðar bæjarhóls í landi Stóru Drageyjar í Skorradal. Fornleifafræðingar sem áttu leið um svæðið sáu að mannvistarleifar leyndust í skurðinum og höfðu því samband við Minjastofnun sem krafðist þess að skurðurinn yrði rannsakaður nánar. Fornleifastofnun Íslands kannaði því skurðinn, en verkstjóri var Lísabet Guðmundsdóttir, og komu tvö mannvirki í ljós. Annars vegar var um að ræða útihús byggt ofan á eldri byggingu og virðist það hafa verið nýtt til íveru. Hitt mannvirkið var lítil bygging með eldstæði, en annars var hlutverk þess óljóst. Aldur yngstu minjanna er sagður frá 19. - 20. öld en ekki var hægt að aldursgreina eldri minjar.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Stóra Drageyri með staðsetningu merktri
Stóra Drageyri í dag · 64,5188° N, 21,5295° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 7. ágúst 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • Gata (troðningur)Leið · Gata (troðningur)Sést illa · Friðað
  • Þúst (lág, óljós upphækkun)Útihús · Þúst (lág, óljós upphækkun)Sést illa · Friðað
  • Garðlag (hlaðinn garður)Matjurtagarður · Garðlag (hlaðinn garður)Sést · Friðað
  • Stóra DrageyriBæjarhóll · HóllSést · Friðað
  • HleðslaHleðslaSést · Friðað
  • VörðuholtVarðaSést illa · Friðað

Sagnir og þjóðtrú í nágrenninu

  • SkorradalsormurSkrímsli · Þjóðsaga · 1,3 km
  • Þekkt af frásögnHænsnakofi · Þekkt af frásögn · 1,6 km
  • Þekkt af frásögnMatjurtagarður · Þekkt af frásögn · 1,6 km
  • MörvambarrifÞjóðtrú · 1,8 km
  • MómýriMógrafir · Þekkt af örnefni · 2,0 km
  • KotamýriHíbýli · Þekkt af örnefni · 2,0 km

4 þessara minja eru í mikilli eða bráðri hættu, vegna framkvæmda. Nákvæm staðsetning minja í hættu er ekki birt.

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Myndir

„[H]orft yfir lagnaskurðinn til vesturs. Í skurðinum sést mannvirki 2. Hægra megin í skurði (norðan megin) er nyrðri langveggur og vinstra megin eru torfveggir ásamt gólflagi á milli þeirra.“Lísabet Guðmundsdóttir. (2016). Fornleifarannsókn á mannvistarleifum í hitaveituskurði í landi Stóru Drageyjar, bls. 1. (FS620-16161). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
„Mannvirki 1 í sniði ásamt stoðarholu í fleti. (Mynd tekin í S)“Lísabet Guðmundsdóttir. (2016). Fornleifarannsókn á mannvistarleifum í hitaveituskurði í landi Stóru Drageyjar, bls. 41. (FS620-16161). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
„Eldstæði í mannvirki tvö. (Mynd tekin í S)“Lísabet Guðmundsdóttir. (2016). Fornleifarannsókn á mannvistarleifum í hitaveituskurði í landi Stóru Drageyjar, bls. 42. (FS620-16161). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.
„Skurðurinn áður en rannsókn hófst. Rauða húsið er gamla íbúðarhúsið en gráa húsið er hlaða. (Mynd tekin í A)“Lísabet Guðmundsdóttir. (2016). Fornleifarannsókn á mannvistarleifum í hitaveituskurði í landi Stóru Drageyjar, bls. 7. (FS620-16161). Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands.

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands