Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Surtshellir og Vígishellir (afhellir Surtshellis)

Mýrasýsla

Surtshellir og Vígishellir (afhellir Surtshellis)

Í stuttu máli

Uppgraftarár
2001–2013 · 2 tímabil
Uppgraftaraðilar
Þjóðminjasafn Íslands (2001); Guðmundur Ólafsson; Kevin Smith o.fl. (2012-2013)
Tilgangur
Björgunaruppgröftur
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Uppgraftartímabil

  1. 2001
  2. 2012–2013

Rannsóknarleyfi Minjastofnunar

Tengd sjálfkrafa eftir staðsetningu; Una á eftir að staðfesta.

Sagan

Í september árið 2001 fór fram björgunarrannsókn, á vegum Þjóðminjasafnins, í einum afhellis Surtshellis, sem oft er kallaður Vígishellir eða Beinahellir. Rannsóknin var gerð undir handleiðslu fornleifafræðinganna Guðmundar Ólafssonar, Agnesar Stefánsdóttur og Kevins Smith, en mikill ágangur ferðamanna var m.a. hvatinn að rannsókninni. Þessa daga skoðuðu fornleifafræðingarnir mannvirki sem hafði verið hlaðið inni í hellinum og mannvistarleifar sem fundust þar (m.a. dýrabein), ásamt því að rannsaka snið í hellinum. Örþunn gólfskán var einnig skoðuð en í henni fundust m.a. jaspisbrot til eldar ásamt rusli eftir ferðamenn síðustu alda. Jaspisbrotin virðast hafa komið frá mismunandi stöðum á landinu sem gæti bent til þess að í hellinum hafi dvalist fólk sem kom víða að. Margt við mannvirkið virtist minna á víkingaaldarskála, svo sem bogadreginn veggur þess, en annað benti til yngri byggingar, t.d. staðsetning eldstæðis sem var ekki fyrir miðju mannvirkisins heldur virðist það hafa verið í hólfi inni í gafli mannvirkisins. Bein úr beinahrúgu voru einnig send í aldursgreiningu og virðast þau vera frá f. hl. 10. aldar. Gott safn dýrabeina bendir til þess að þarna hafi hellisbúar neitt afurða kinda, kúa, hesta og svína, en eftirtektarvert er að engar leifar fiska, skelja eða fugla fyrirfundust á svæðinu. Það getur þýtt að lítið hafi verið sótt til sjávar af þeim sem höfðust við í hellinum (Guðmundur Ólafsson, Kevin P. Smith og Agnes Stefánsdóttir, 2004).

Árin 2012 og 2013 hélt björgunarrannsóknin áfram undir handleiðslu sömu fornleifafræðinga að mestu. Nú var t.d. gólfskánin í Vígishelli rannsökuð betur, en í henni fundust m.a. 40 glerperlur, blýlóðasett, jaspis og aðrir eldsláttusteinar. Eldstæðið var einnig rannsakað nánar og fengust vísbendingar um að það hafi í raun upphaflega verið fyrir miðju híbýlisins, líkt og algengt var í víkingaaldarbústöðum. Eldstæðið sem áður var talað um hefur líklega verið til komið vegna heimsókna í hellinn á þessari og síðustu öld. Í Surtshelli fundust tvær hrúgur af óbrenndum, brotnum dýrabeinum til viðbótar og eru þær hrúgur nú orðnar sjö talsins (og hafa fundist víðs vegar um hellinn, að afhellunum meðtöldum). Þessar hrúgur virðast allar vera frá víkingaöld skv. aldursgreiningum. Slíkar greiningar gefa því til kynna að hellirinn hafi verið notaður í a.m.k. 80 ár á 10. - 11. öld, en hann hafi þá verið yfirgefinn (Agnes Stefánsdóttir og Ásta Hermannsdóttir, bls. 14-15).

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Surtshellir og Vígishellir (afhellir Surtshellis) með staðsetningu merktri
Surtshellir og Vígishellir (afhellir Surtshellis) í dag · 64,7815° N, 20,7260° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 8. júlí 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • SurtshellirHellir · 800-1900Sést vel · Friðað

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Á Wikipediu

Surtshellir
Surtshellir er einn lengsti og þekktasti hraunhellir á Íslandi, um 1.970 metrar á lengd. Surtshellir er í Hallmundarhrauni, á um 40 m dýpi í um 14 km frá Húsafelli og 60 km frá Borgarnesi.

Stefánshellir
Stefánshellir er hellir í Hallmundarhrauni sem rannsóknir hafa leitt í ljós að er í raun sami hellir og Surtshellir. Sennilega hafa þeir áður verið einn og sami hellirinn áður en að hrun hafi orðið í hellinum og þannig lokast á mili þeirra.

Íshellir
Íshellir er íslenskur hellir við Purkhólahraun á Snæfellsnesi.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Hægt er að fá leiðsögn um Surtshelli

Myndir

„Guðmundur Ólafsson við skráningu á mannvirki A í Vígishelli. Beinarúga B er til vinstri. Horft til austurs. Ljósm. Kevin Smith.“Guðmundur Ólafsson, Kevin P. Smith og Agnes Stefánsdóttir. (2004). Rannsókn á minjum í Surtshelli, bls. 1. (Rannsóknaskýrslur Þjóðminjasafns 2001: VIII). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
„Yfirlitskort af hluta Surtshelli og rannsóknarsvæði.“Guðmundur Ólafsson, Kevin P. Smith og Agnes Stefánsdóttir. (2004). Rannsókn á minjum í Surtshelli, bls. 4. (Rannsóknaskýrslur Þjóðminjasafns 2001: VIII). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
„Flatarteikning af minjum í Vígishelli. Hreinteikn. G. Ólafsson.“Guðmundur Ólafsson, Kevin P. Smith og Agnes Stefánsdóttir. (2004). Rannsókn á minjum í Surtshelli, bls. 6. (Rannsóknaskýrslur Þjóðminjasafns 2001: VIII). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
„Horft til austurs yfir mannvirki A. Hæð og gerð veggja sést greinilega. Sömuleiðis bogadregnir veggir og eldstæði. Inngangar eru á miðjum veggjum, undir málbandi sem strengt var þvert yfir rústina til þess að mæla út frá. Ljósm. Kevin Smith.“Guðmundur Ólafsson, Kevin P. Smith og Agnes Stefánsdóttir. (2004). Rannsókn á minjum í Surtshelli, bls. 7. (Rannsóknaskýrslur Þjóðminjasafns 2001: VIII). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
„Kevin Martin, einn meðlima rannsóknarhópsins, inni í víkingaaldarmannvirkinu í Surtshelli eftir að síðasta gólflagið hafði verið fjarlægt, 22. ágúst 2013. Ljósmynd: Kevin Smith.“Agnes Stefánsdóttir og Ásta Hermannsdóttir. (2016). Surtshellir í Kalmanstungu. Í A. Stefánsdóttir og Á. Hermannsdóttir (ritstjórar), Yfirlit yfir fornleifarannsóknir: 2013 (bls. 14). Reykjavík: Minjastofnun Íslands.

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands