Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Víðgelmir

Mýrasýsla

Víðgelmir

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1993
Uppgraftaraðilar
Guðmundur Ólafsson
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Sagan

Árið 1993 voru félagar úr Hellarannsóknarfélagi Íslands í könnunarferð í Víðgelmi. Einn þeirra sá þá syllu uppi í hellisveggnum sem hann klifraði upp í. Sá hann þar augljósar leifar eftir mannvist, svo sem eldstæði, dýrabein og við nánari skoðun þeirra félaga fundust glerperlur og skinnpjötlur á svæðinu. Var þá Þjóðminjasafninu gert viðvart sem sendi hóp fræðimanna á staðinn til að kanna betur. Í þessum leiðangri var hellirinn, syllan og fleira teiknað upp. Eldstæði fannst m.a. á staðnum en enginn umbúnaður hafði verið um það eins og búast hefði mætti við. Einnig fannst þar lítil steinahleðsla en erfitt var að álykta til um hlutverk hennar. Rannsakendur stinga þó upp á að þarna hafi verið byrjað að hlaða rúmbálkn sem ekki var lokið við. Engin gólfskán hefur myndast á staðnum sem bendir til þess að ekki hafi verið löng eða samfelld mannvist í hellinum. Sörvistölurnar (perlurnar) fundust ásamt leðurpjötlunum, en einnig fundust flögur úr jaspis sem hefur verið notaður til að kveikja eld, ásamt broti af bronsþræði. Beinin sem fundust á staðnum voru dreifð um gólfið, og flest voru það kúabein. Þau bera þess mörg merki að hafa verið elduð og borðað utan af þeim (hnífsmörk mátti sjá á beinunum). Athygli vakti að fjöldi beinanna er af kjötlitlum bitum, t.d. rifbein, skankar og höfuðbein. Aldursgreiningar á beinum og gripum úr hellinum benda til þess að hellirinn hafi verið notaður á 10. öld, og benda rannsakendur á að það líti út fyrir að hann hafi verið notaður í nokkra daga, þá mögulega sem felustaður.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Víðgelmir með staðsetningu merktri
Víðgelmir í dag · 64,7503° N, 20,8020° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 16. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1960 af svæðinu
Úr lofti 16. júlí 1960 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Á Wikipediu

Víðgelmir
Víðgelmir er einn af lengstu hellum landsins og rúmtaksmestu hraunhellum heims. Hann er í Hallmundarhrauni, u.þ.b. 2 km suðaustur af Fljótstungu í Hvítársíðu.

Textar af íslensku Wikipediu (CC BY-SA 4.0), um staði innan 1 km.

Að heimsækja

Hægt er að fá leiðsögn um Víðgelmi

Myndir

„Flatarteikning af hellisskúta og sýnir m.a. eldstæði og afstöðu funda. Svarta lóðrétta strikið er sprunga í gólfi syllunnar“ Teikning: Guðmundur Ólafsson."Guðmundur Ólafsson. (1994). Úr fylgsni fortíðar í hellinum Víðgelmi: Rannsókn 11. desember 1993 (bls. 5). (Rannsóknarskýrslur fornleifadeildar 1993: III). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. "
„Eldstæðið. Greina má beinaleifar innan um viðarkolin í eldstæðinu og á víð og dreif um gólfið. Hvítleita hrúgan neðst til hægri í eldstæðinu eru brennd bein.“ Ljósmyndari: Guðmundur Ólafsson."Guðmundur Ólafsson. (1994). Úr fylgsni fortíðar í hellinum Víðgelmi: Rannsókn 11. desember 1993 (bls. 6). (Rannsóknarskýrslur fornleifadeildar 1993: III). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. "
„Sex perlur og brot úr bronsþræði sem fundust við eldstæðið.“ Ljósmyndari: Guðmundur Ólafsson."Guðmundur Ólafsson. (1994). Úr fylgsni fortíðar í hellinum Víðgelmi: Rannsókn 11. desember 1993 (bls. 8). (Rannsóknarskýrslur fornleifadeildar 1993: III). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. "
„Leðurpjötlur á fundarstað. Hvítar mygluleifar til hliðar við pjötlurnar benda til þess að þær hafi verið færðar til, áður en kallað var á fornleifafræðing.“ Ljósmyndari: Guðmundur Ólafsson."Guðmundur Ólafsson. (1994). Úr fylgsni fortíðar í hellinum Víðgelmi: Rannsókn 11. desember 1993 (bls. 9). (Rannsóknarskýrslur fornleifadeildar 1993: III). Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands. "

Nánari fróðleikur

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands