Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Ísleifsstaðir

Mýrasýsla

Ísleifsstaðir

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1939
Uppgraftaraðilar
Mårten Stenberger
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Uppgröftur · Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Gripir · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar

Sagan

Árið 1939 hóf hópur innlendra og erlendra fræðimanna uppgraftarsyrpu á Íslandi. Mest var áherslan lögð á uppgröft fornra bæja í Þjórsárdaln en einnig voru nokkrir staðir rannsakaðir í Borgarfirði. Þeirra á meðal voru Ísleifsstaðir en Mårten Stenberger hafði umsjón með uppgreftrinum. Uppgraftarsvæðið var á sléttu suður af Örnólfsdalsá, um 4-500 metrum austan við Norðtungu, þar sem Sleggjulækur rennur út í ána. Stenberger gróf þar upp tvær tóftir. Sú vestari var um 14 m löng og 6 m á breidd, hlaðin úr torfi eingöngu, og að öllum líkindum útihús. Eystri tóftin var flóknari, en þar hafa byggingar verðir byggðar ofan í eldri leifar. Um ræðir skála sem hefur verið um 17 m að lengd og 5 m að breidd að innanmáli, gólf hefur verið hellulagt að hluta og mögulega hafa veggir verið þiljaðir þar sem steinaröð fylgdi útlínum veggjanna. Einnig kemur Stenberger með þá tilgátu að herbergi hafi verið afstúkuð með þiljum hvort í sínum enda skálans. Á gólfi hefur einnig verið langeldur en nokkuð magn ösku og viðarkola fannst í skálanum sem gefur til kynna að hann hafi mögulega brunnið. Þessi bygging var auk þess byggð ofan í í það minnsta tvö eldri byggingarlög svipaðra skála, og nær því byggingarsaga staðarins hugsanlega aftur til landnámsaldar. Undir elsta byggingarfasanum fann Stenberger viðarkol og leifar af birkitrjám sem mögulegir landnámsmenn hafa þá væntanlega brennt og fellt þegar fyrsti skálinn var reistur. Nokkrir gripir fundust á svæðinu, en lítið sem hægt var að nota til aldursgreiningar. Þá fundust aðallega illa farnir járngripir á borð við hnífa og sylgjur o.s.frv., en einnig brýni og snældusnúðar úr steini. Auk þess fannst eitt met sem ætla má að sé frá víkingaöld.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Ísleifsstaðir með staðsetningu merktri
Ísleifsstaðir í dag · 64,7337° N, 21,3879° V · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 16. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1959 af svæðinu
Úr lofti 27. júlí 1959 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar innan 500 m

  • Ísleifsstaðir · 5 skráðar minjarDæld, Garðlag (hlaðinn garður), Tóft (rúst) · 870-1900Sést illa, Sést vel, Sést · Friðlýst minjar

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands

Að heimsækja

Rústirnar sjást á loftmynd svo gera má ráð fyrir að hægt sé að skoða þær

Myndir

Gripir sem fundust á Ísleifsstöðum. Efst til vinstri er snældusnúður úr steini, fyrir neðan hana er skífa úr gulgráum sandsteini sem búið er að skera í (Stenberger stingur upp á að þarna sjáist rostungshöfuð útrist í gripinn), fyri rmiðju eru leifar hnífsblaðs og þá er brýni lengst til hægri. (Ljósmyndara er ógetið).Mårten Stenberger. (1943). Ísleifsstaðir, Borgarfjarðarsýsla. Í Forntida gårdar i Island: Nordiska arkeologiska undersökningen i Island 1939 (bls. 166). Kaupmannahöfn: Ejnar Munksgaard.
Teikning Stenbergers af elstu leifum skálans, sjá má hellulagða stétt við innganginn og eldstæði sem liggur inn eftir honum.Mårten Stenberger. (1943). Ísleifsstaðir, Borgarfjarðarsýsla. Í Forntida gårdar i Island: Nordiska arkeologiska undersökningen i Island 1939 (bls. 158). Kaupmannahöfn: Ejnar Munksgaard.

Nánari fróðleikur

  • Mårten Stenberger. (1943). Ísleifsstaðir, Borgarfjarðarsýsla. Í Forntida gårdar i Island: Nordiska arkeologiska undersökningen i Island 1939 (bls. 145 - 170). Kaupmannahöfn: Ejnar Munksgaard.