Ný útgáfa í prófun. Skoða sömu síðu í gömlu útgáfunni
Uppgreftir / Þyrill í Hvalfirði

Borgarfjarðarsýsla

Þyrill í Hvalfirði

Í stuttu máli

Uppgraftarár
1880
Uppgraftaraðilar
Sigurður Vigfússon
Tilgangur
Rannsókn í vísindaskyni
Aðferð og umfang
Fullnaðaruppgröftur
Staða
Lokið
Fundir
Dýrabein · Mannvirki
Hægt að heimsækja
Já, sjá nánar
Staðsetning
Áætluð

Sagan

Sigurður Vigfússon fornleifafræðingur gróf upp tóft við Þyril í Hvalfirði árið 1880. Tóftin hafði í daglegu tali verið kallað hof eða blóthús en tóftin snýr norður-suður og er með hellulögðu afhúsi í norðurhlutanum. Tóftin stendur einnig í halla og voru miklar grjóthleðslur í veggjum hennar. Einnig var merkilegt að gólfið í afhúsinu virtist hafa verið um hálfum metra lægra heldur en gólfið í aðalhúsinu. Aðalhúsið var svo um 57 fet (ca. 17 m) að lengd og um 17 fet (ca. 5 m) að breidd en afhúsið var sömuleiðis um 17 fet (ca. 5 m) að lengd. Steinlögn og steinaraðir hafa verið í byggingunni en Sigurður fann þar ösku og hrossatennur. Hann segist þó hafa grafið af sér allan grun um að húsið hafi verið nýtt fyrir skepnur þar sem hann hafi ekki fundið gólfskán, leifar af heyi eða neitt þvíumlíkt við gröftinn. Áður en uppgröfturinn hófst lét Sigurður taka stóran stein úr vegg tóftarinnar sem ávallt hafði verið kallaður Blótsteinn. Hann segist þess fullviss um að þarna sé um að ræða blóthús sem talað er um í Harðarsögu. Sigurður skildi tóftina eftir með veggjarhleðslum svo aðrir gætu skoðað hana seinna meir. Hinum svokallaða Blótsteini segist hann svo, ásamt fleirum, hafa velt til og skilið eftir.

Staðurinn

Gervihnattamynd af svæðinu við Þyrill í Hvalfirði með staðsetningu merktri
Þyrill í Hvalfirði í dag · 64,3891° N, 21,4164° V · staðsetning áætluð · Opna á kortinu
Svarthvít loftmynd frá 1945 af svæðinu
Úr lofti 23. september 1945 · afmörkun áætluð út frá miðju myndar · Army Map Service, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin
Svarthvít loftmynd frá 1956 af svæðinu
Úr lofti 4. ágúst 1956 · afmörkun áætluð · Defense Mapping Agency, Náttúrufræðistofnun Íslands (CC BY 4.0) · Öll myndin

Skráðar minjar á svæðinu (innan 1 km)

  • HúsBrunnur · Hús · 1900-1950Heillegar · Friðað
  • BlóthúsSkáli · Tóft (rúst) · 870-1500Sést illa · Friðlýst minjar
  • BláskeggsárbrúBrú · Steinsteypt mannvirki · 1900-1910Heillegar · Friðlýst minjar

Byggt á gögnum Minjastofnunar Íslands · staðsetning uppgraftarins er áætluð

Að heimsækja

Rústir eru sjáanlegar á yfirborði en ekki vel þó

Myndir

Teikning Sigurðar af tóftinni („Blóthúsið í túninu á Þyrli, 57 fet á lengd, og 17 fet á breidd. Gólfið í afhýsinu er steinlagt og lægra en í aðalhúsinu. a. fannst aska. ab. fannst aska og hrosstönnur“).Sigurður Vigfússon. (1881). Rannsókn á blóthúsinu að Þyrli og fleira í Hvalfirði og um Kjalarnes. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1880 - 1881. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.
Teikning Sigurðar af hinum svokallaða blótsteini („Blótsteinninn á Þyrli, sem kallaður er, og á að hafa staðið í blóthúsinu, hann er 1 1/4 al. á lengd, 3/4 al. á breidd, 1/2 al. á þykkt. Bollinn er 4 þuml. í þvermál, og 2 1/4 á dýpt.“).Sigurður Vigfússon. (1881). Rannsókn á blóthúsinu að Þyrli og fleira í Hvalfirði og um Kjalarnes. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1880 - 1881. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Nánari fróðleikur

  • Sigurður Vigfússon. (1881). Rannsókn á blóthúsinu að Þyrli og fleira í Hvalfirði og um Kjalarnes. Í Árbók Hinz íslenzka fornleifafélags: 1880 - 1881 (bls. 65 - 78). Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja.

Skráningarskýrslur

Skýrslur: Minjastofnun Íslands